Monday, November 30, 2009
Grjóna-hitapokarnir vinsælu.
Grjóna-hitapokarnir eru tilvaldir í jólapakkann. Þeir eru til í nokkrum litum og tveim stærðum. Þeir eru einfaldlega hitaðir í örbylgjuofni í 1-3 mínútur. Einnig er hægt að kæla þá í frysti, en þá er hægt að nota þá sem kaldann bakstur.
Þessi poki hér að ofan er dökkbrúnn með fallegu munstri. Hann kostar 2200 krónur.
Þessi hitapoki hér að ofan er hvítur og dökkblár. Þetta snið situr vel á herðunum og tollir vel á sínum stað, jafnvel þótt gengið sé um gólf. Þetta snið kostar 3200 krónur.
Hitapokinn hér að ofan er röndóttur með bleikum saumum. Hann kostar 3200 krónur.
Saturday, November 7, 2009
Ný framleiðsla - smekkir
Nú er ég farin að framleiða þessa sætu barnasmekki. Þeir eru flísfóðraðir að aftan og til í ýmsum litum. Verð 700 krónur stykkið
Þetta eru sýnishorn af litum sem ég er með núna, en fleiri litir eru væntanlegir fljótlega.
Röndóttur, bleikur, grár og hvítur.
Röndóttur, ljósblár, dökkblár og hvítur.
Þeir eru festir með frönskum rennilás.
Hægt er að panta smekki með því að senda mail á netfangið bjorkdesign@hotmail.com
Hægt er að panta smekki með því að senda mail á netfangið bjorkdesign@hotmail.com
Tuesday, October 13, 2009
Nýir litir
Ég er komin með nýja liti á hálskrögunum. Blár, dökkbleikur og ljósbleikur. Hálskragarnir eru prjónaðir úr norskri ull. Þeir eru mjög hlýir og mjúkir og eru alveg tilvaldir t.d. á leikskólann og í vagninn. Verð 900 Krónur stykkið.
Hægt er að hafa samband við mig með e-mail bjorkdesign@hotmail.com
Thursday, October 1, 2009
Sniðugar gjafir.
Hálskragarnir og snudduhladararnir eru frábærar gjafir fyrir litlu krílin. Og hægt er að velja t.d. snudduhaldara og kraga í stíl.
Hérna er dökkblár kragi og blár snudduhaldari með öryggisnælu og bjöllu. Kraginn kostar 900 KR og snudduhaldarnni kostar 1500 KR.
Hér er grænn hálskragi og grænn og blár snudduhaldari með bjöllu og járnklemmu. Snudduhadari kostar 1500 KR.
Hér er svo rauður hálskragi og rauður og viðarlitaður snudduhaldari með öryggisnælu og bjöllu. Snudduhaldarinn kostar 1500 KR og kraginn kostar 900 KR.
Snudduhaldarar og hálskragar
Ég er komin með nokkra nýja liti á hálskrögunum, hérna koma nokkur sýnishorn af þeim.
Þetta eru litirnir. Dökkblár, beinhvítur, rauður og grænn.
Hérna er þessi dökkblái litur.
Og hér er græni liturinn.
Stykkið af krögunum kostar 900 krónur.
Stykkið af krögunum kostar 900 krónur.
Monday, September 28, 2009
Fleiri sýnishorn...
Hérna koma aðeins fleiri sýnishorn af snudduhöldurum.....
Þessi er blár og grænn með bjöllu og blárri plastklemmu. Verð 1500 krónur.
Þessi er rauður og bleikur með bjöllu og öryggisnælu. Verð 1500 krónur. Þarna sést líka hvernig er hægt að hengja snuðið á haldarann.
Friday, September 18, 2009
Fleiri sýnishorn af snudduhöldurum....
Hérna koma nokkur sýnishorn af snudduhöldurum. Hægt er að velja texta á snudduhaldarana og einnig er hægt að velja um litatóna. T.d. í bleikum, bláum, grænum eða marglitum tónum. Einnig er hægt að panta bjöllu á snudduhaldarana.
Þessi er bleikur með bleikri nettri járnklemmu. Kostar 1500 krónur.
Þessi er bleikur með hvítri nettri járnklemmu. Kostar 1500 krónur.
Þessi er í grænum jarðarlitum með ljósgrænni plastklemmu. Kostar 1500 krónur.
Pantanir sendist á bjorkdesign@hotmail.com
Í pöntun þarf að koma fram texti sem á að vera á haldaranum, óskir um litatón, hvort óskað er eftir járnklemmu, plastklemmu eða öryggisnæluog hvort hann eigi að vera með bjöllu eða ekki.
Pantanir sendist á bjorkdesign@hotmail.com
Í pöntun þarf að koma fram texti sem á að vera á haldaranum, óskir um litatón, hvort óskað er eftir járnklemmu, plastklemmu eða öryggisnæluog hvort hann eigi að vera með bjöllu eða ekki.
Tuesday, September 8, 2009
Hlýir og vandaðir hálskragar
Þetta er ný framleiðsla hjá mér. en nú er ég búin að hanna þetta frábæra snið af hálskrögum fyrir börn. Kragana prjóna ég úr norskri ull.
Hálskragarnir liggja þétt að hálsinum og ná vel niður á bringuna og svo niður á bakið. Þannig að þeir eru mjög hlýir og góðir.
Þeir eru til í nokkrum litum, t.d. þessum fallega rauða lit.
Og líka í þessum beinhvíta lit.
Hér er svo þessi myndarlega fyrirsæta með hálskraga í dökkbláum lit. Hér sést vel hvernig hálskraginn liggur þétt að hálsinum og fer svo vel niður á bak og bringu.
Kragarnir kosta 900 krónur stykkið.
Kragarnir kosta 900 krónur stykkið.
Monday, August 24, 2009
Nýir Snudduhaldarar !!!
Tuesday, June 16, 2009
Snudduhaldarar
Snudduhaldararnir eru mjög sniðugir í allskonar gjafir fyrir litlu krílin.
Þessi hér að ofan er með ljósgrænni klemmu en þær eru til í fleiri litum. Hann kostar 1500 krónur.
Þessi hér að ofan er með ljósblárri öryggisnælu, en ég á þær til í fleiri litum.
Ég er alltaf að gera nýjar týpur af snudduhöldurunum. Ég er með nokkrar gerðir af festingum og nokkra liti. Hægt er að velja um texta á snudduhaldarann. Snudduhaldararnir kosta 1500 krónur. Ef þú hefur áhuga á að kaupa snudduhaldara, eða einhverjar aðrar vörur á síðunni minni, þá getur þú sent e-mail á bjorkdesign@hotmail.com
Saturday, May 23, 2009
Nýr litur
Ég er komin með þennan nýja lit á nýja sniðinu og þessi litur er líka væntanlegur á hinu sniðinu.
Kostar 3200 krónur
Ef þið hafið áhuga á pokunum þá getið þið haft samband við mig með e-mail á bjorkdesign@hotmail.com
Tuesday, May 19, 2009
Ný framleiðsla :)
Nú er ég farin að framleiða þessa snudduhaldara.Hægt er að velja um texta til að setja á þá, t.d. nafn barnsins sem á að fá snudduhaldarann :) En því miður er ég ekki með neina séríslenska stafi.
Snudduhaldararnir kosta 1500 krónur.
Snudduhaldararnir kosta 1500 krónur.
Sunday, May 17, 2009
Nýtt snið
Ég er búin að vera að vinna í að búa til þetta nýja snið. Þessir pokar eru hannaðir með það í huga að þeir tolli vel á öxlunum og fara vel yfir axlir og niður á bak. Þeir tolla vel á sínum stað, þó svo að gengið sé um með þá á öxlunum. Pokarnir eru einfaldlega hitaðir í örbylgjuofni í 1-3 mínútur, en einnig er hægt að kæla þá í frysti, svo hægt sé að nota þá fyrir kaldann bakstur.
Þessir pokar kosta 3200 krónur.
Saturday, May 2, 2009
Thursday, April 30, 2009
Hitapokar
Þessir kosta 2200 krónur. Alla hitapokana má hita í örbylgjuofni í 1-2 mínútur og einnig má kæla þá í frysti og nota þá sem kalda bakstra.
Hitapokar
Ég er með til sölu þessa frábæru grjóna-hitapoka. Hægt er að hita þá í örbylgjuofni í 1 - 2 mínútur. Einnig er hægt að setja þá í frysti og nota þá sem kaldann bakstur.
Þessir pokar kosta 2200 krónur. Svo set ég reglulega inn nýja liti og ný snið :)
Subscribe to:
Posts (Atom)